Thursday, May 15, 2008

Stúlka með blóðnasir eða hvernig fer fyrir manni noti maður skírlífsbelti



Kvikmyndaklúbburinn Stígvélaði kötturinn var endurvakinn á eftirminnilegan hátt í kvöld.
Mynd: That Obscure Object of Desire eða Cet obscur objet du désir
Drykkur: rauðvín
Léttar veitingar: þrjú kíló af Quality Street sem amma gaf mér í jólagjöf
Undirtektir: einstaklega góðar

Umræður að mynd lokinni snerust að mestu um masókisma, viðsnúin kynhlutverk og hvers vegna skírlífsbelti hættu að vera móðins.

1 comment:

Finnur Guðmundarson Olguson said...

Hæ, Guðrún. Mikið gleður það mig að þú leyfir okkur á ný að skyggnast inn í forgarð sálar þinnar og/eða helvítis. Þú spilar Mario; ég læri öll efnin í lotukerfinu: Vissirðu að það er til frumefni sem heitir Seaborgium? HAH! Ímyndaðu þér. Einnig er ég klæddur í skírlífsalgalla.