Friday, June 13, 2008

Og svona örlítið til að ljúka bjarnarmálinu..

Í dag heyrði ég frétt í útvarpinu um það að ísbjörninn sem drepinn var fyrir næstum því tveimur vikum hefði verið með magann fullan af mosa þegar hann dó. Hann hafði ekki etið neitt nema jurtir frá því að hann kom í land (vongóður um hlýlegar viðtökur landsmanna). Í kjölfar fréttarinnar játuðu nokkrir bloggarar, sem höfðu haldið því fram að ísbjörnin væri á leið á næsta leikskóla, ýkjur í málflutningi sínum. Björninn hafði víst aldrei sagt það beint, heldur ,,gaf hann það ógeðslega mikið í skyn með augngotum og óviðeigandi bröndurum".
Þá er það komið á hreint. Þetta var bara svona.. uhh.. hvað kalla menn þetta.. árekstur menningarheima - er það ekki?!

2 comments:

Finnur Guðmundarson Olguson said...

Þú ert of antrópómorfísk. Ég hefði viljað sjá þig fanga hann. Ég var líka á þinni skoðun, en það er víst meira en að segja það að deyfa þennan gæja og halda honum í búri til einhvers tíma. Þetta eru sko STÓRhættulegar skepnur. Sástu ekki Nonna og Manna?

guðrún elsa said...

Jess! Það les einhver bloggið mitt! Hættu að kvarta Finnur, ég er ógeðslega fyndin. Það er fyndið að vera antrópómorfískur.